Notkunarskilmálar

Uppfært 10. mars 2025

postur@vasaskrimsli.is

Við hvetjum allar til að nota og endurnýta þær upplýsingar og námsefni sem eru gerðar aðgengilegar á vefnum vasaskrimsli.is samkvæmt þessu leyfi, að uppfylltum eftirfarandi skilmálum.

Notkun upplýsinga með þessu leyfi

Með notkun efnis sem hefur verið gert aðgengilegt samkvæmt þessu leyfi (hér eftir kallað “upplýsingarnar“) telst þú hafa samþykkt eftirfarandi skilmála og skilyrði.

K65 ehf. (K65), Kambasel 65, 109 Reykjavík kt. 630322-1030 gefur þér ótímabundið leyfi til varanlegrar notkunar á upplýsingunum og námsefni, án gjaldtöku að uppfylltum skilyrðunum hér fyrir neðan.

Þú færð leyfi til að

  • afrita, birta, dreifa og senda upplýsingarnar,
  • aðlaga upplýsingarnar,
  • endurnýta upplýsingarnar til dæmis með því að setja þær saman við aðrar upplýsingar.

Þú verður, þegar þú gerir eitthvað af ofantöldu, að

  • láta koma fram að þær upplýsingar sem byggt er á komi frá Íslenska Vasaskrímslaverkefninu með eftirfarandi texta: Byggt á efni fengnu frá Íslenska Vasaskrímslaverkefninu (vasaskrimsli.is).
  • að vísa í þetta leyfi þar sem því verður við komið.

Gættu að því að

  • þú notir ekki upplýsingarnar með þeim hætti að þú gefir til kynna að þú sért höfundur þess eða að upplýsingaveitandinn samþykki þig sérstaklega sem notanda eða notkun þína á upplýsingunum;
  • þú villir ekki um fyrir öðrum eða birtir upplýsingarnar eða getir um uppruna þeirra með villandi eða röngum hætti;
  • þú breytir ekki upplýsingunum eða gögnunum í þeim tilgangi að afbaka, afskræma, miðla röngum upplýsingum eða selja áfram.
  • notkun þín og framsetning á upplýsingunum stangist ekki á við höfundalög nr. 73/1972.
  • umgangast niðurhalað efni af virðingu við höfunda þess og fara í hvívetna að gildandi lögum.

K65 áskilur sér

  • rétt til eftirlits með því hvort þú farir að skilmálum þessum.
  • að endurskoða skilmála þessa án fyrirvara, gerist þess þörf vegna breytinga á þjónustuframboði eða starfsemi K65.
  • rétt til að stofna til skaðabótaskyldu ef um er að ræða afskræmingu eða aðra vanvirðingu við höfund upplýsinganna af hálfu notanda.

Þér ber að fara að notendaskilmálum og lúta höfundarrétti við niðurhal, endurbirtingu, dreifingu eða afritun efnis af vasaskrimsli.is. Falli viðkomandi efni eða upplýsingar ekki að þeim skilmálum, ber þér að leita eftir samþykki K65. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru eða efni né í hvaða tilgangi niðurhal, endurbirting, dreifing eða afritun.

Þér er óheimilt er með öllu að hala niður og nýta upplýsingar og námsefni í þeim tilgangi að nota beint, líkja eftir eða byggja upp sambærilegt efni í viðskiptalegum tilgangi eða í hagnaðarskyni.

Ef þú fylgir ekki þessum skilyrðum eru réttindi þín samkvæmt þessu leyfi sjálfkrafa afturkölluð.

Engin ábyrgð

K65 ehf. tekur enga ábyrgð á birtu efni.

K65 ehf. er undanskilin fyrirsvari, ábyrgð, skyldum og skaðabótum í
tengslum við upplýsingarnar að því marki sem lög leyfa.

K65 ehf. ber ekki ábyrgð á neinum villum eða staðhæfingum í upplýsingunum og skal ekki vera ábyrgt fyrir neinu tapi, tjóni, meiðslum eða skaða sem hlýst af beinni eða óbeinni notkun þeirra.

K65 ehf. ber ekki ábyrgð á notkun upplýsinganna af hálfu þriðja aðila né ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra.

K65 ehf. ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum.

K65 ehf. ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefsvæði sín (k65.is eða vasaskrimsli.is) um skemmri eða lengri tíma.

Gildandi lög

Þetta leyfi er háð lögum í því lagaumhverfi þar sem upplýsingaveitandinn hefur aðsetur nema annað sé tekið fram af upplýsingaveitandanum.

Skilgreiningar

Í þessu leyfi hafa orðin hér fyrir neðan eftirfarandi merkingu

„upplýsingar“

stendur fyrir þær upplýsingar sem falla undir höfundarétt eða vernd gagna (til dæmis bókmennta – eða listaverk, efnisinnihald, þýðingar, framsetning, námsefni, myndir, gögn eða frumkóði hugbúnaðar) sem eru gefin út samkvæmt skilmálum þessa leyfis.

„nota“

sem sagnorð, stendur fyrir framkvæmd þeirra aðgerða sem eru varðar með höfundarétti eða vernd gagna, hvort sem er með upprunalegum miðli eða öðrum miðli og felur í sér takmörkun á dreifingu, fjölfjöldun, aðlögun og breytingum sem eru tæknilega nauðsynlegar til notkunar með öðrum hætti eða á öðru sniði.

„þú“

stendur fyrir einstakling eða lögaðila eða hóp slíkra aðila sem fær þau réttindi sem leyfið veitir.