Orðsifjafræði

Íslenska orðið Vasaskrímsli er komið úr enska heitinu „Pocket Monsters“ sem er þýðing á japanska heitinu „ポケットモンスター“ eða Poketto Monsutā.

Orðsifjafræði er rannsókn á uppruna orða. Þó að sum Vasaskrímslanöfn séu nokkuð augljós, þá eru mörg þeirra tyrfin og eiga sér óljósan bakgrunn. Þau geta verið dregin af einföldum dýratengslum eða vísað til flókinna vísindalegra hugtaka, sögulegra atburða og goðsagnakenndra vera.

Á þessari síðu er uppruni þýðinganna á nöfnum Vasaskrímsla rakinn og útskýrður. Taflan hér að neðan inniheldur skýringar og skýringartilgátur um uppruna og söguleg vensl íslenskra heita Vasaskrímslanna og orðmynda þeirra, jafnt úr fornu máli sem og úr nútímaíslensku. Þegar nánari útskýringa er þörf er hægt að smella á orðin í textanum.

Ef þú tekur eftir einhverjum villum eða finnst eitthvað vanta, láttu endilega vita með tölvupósti á ordsifjafraedi@vasaskrimsli.is.

Fyrsta | Önnur | Þriðja | Fjórða | Fimmta | Sjötta | Sjöunda | Áttunda | Níunda

Fyrsta kynslóð

NúmerNafnUpprunaorðÞýðingEnska
1LaukeðlaLaukeðlaLaukur: Norrænt orð, fjölær planta, nytjajurt af laukætt (sbr. bulb).
Eðla: Skriðdýr með langan hala (sbr. saur úr grísku sauros).
Bulbasaur
2NetlungurNetlungurNetla: Jurt af netluætt sem brennir (tengist Ivy sem er klifurjurt/eiturjurt), Brenninetla.
-ungur: Oft notað um afkvæmi eða eitthvað smátt, eitthvað sem hefur lifað í fá ár
Ivysaur
3ArfagálknArfagálknArfi: Illgresi/jurt af hjartagrasaætt (vísar í plöntuhlutann), Haugarfi.
Gálkn: Fornt orð yfir ófreskju eða skrímsli (t.d. finngálkn).
Venusaur
4GlóðmandraGlóð-mandraGlóð: Lifandi kol, eldur sem leynist (sbr. char).
Mandra: Stytting á salamandra. Í þjóðtrú var talið að salamöndru-eðlur gætu lifað í eldi.
Charmander
5KameldljónKam-eld-ljónKamelljón: Skriðdýr sem skiptir litum.
Eld: Orðinu eldur er skotið inn í orðið til að vísa í brunann (Kam-eld-ljón).
Charmeleon
6BálormurBál-ormurBál: Mikill eldur, kestur.
Ormur: Í fornu máli var orðið oft notað yfir dreka eða slöngur (sbr. Lyngormur).
Charizard
7SprautillSpraut-illSprauta: Að senda vökva af krafti.
-ill: Smækkunar- eða gælending (sbr. snigil eða pési). Vísar í smæð og vatnið.
Squirtle
8SkjaldborgariSkjald-borgariSkjaldborg: Varnarveggur úr skjöldum (hernaðarheiti).
Borgari: Íbúi eða sá sem býr í „borginni“ (skelinni).
Wartortle
9BrynbakaBryn-bakaBrynja: Hlífðarföt, herklæði úr málmi.
Baka: Stytting á skjaldbaka. Skrímslið er brynvarin skjaldbaka.
Blastoise
10LirfingurLirf-ingurLirfa: Ófullkomið þroskastig skordýrs.
-ingur: Viðskeyti sem táknar oft uppruna eða smæð.
Caterpie
11PúpistiPúp-istiPúpa: Hylki sem lirfa myndar utan um sig áður en hún verður fluga.
-isti: Ending (oft notuð um menn/fög), hér líklega til gamans eða persónugervingar.
Metapod
12FrírildiFrí-rildiFrí: Laus og liðugur, frjáls.
Fiðrildi: Skordýr.
Orðaleikur: Hljóðlíking við fiðrildi en „fið“ er skipt út fyrir „frí“.
Butterfree
13NálgurNál-gurNál: Oddmjótt verkfæri (vísar í broddinn).
-gur: Ending dregin af orðum eins og maðkur eða vargur.
Orðaleikur: Hljóðlíking við Njálgur.
Weedle
14HýðingurHýð-ingurHýði: Hylki, hams eða utanáliggjandi skel.
-ingur: Karlkynsviðskeyti.
Kakuna
15BorbýBor-býBor: Verkfæri til að bora holur.
Bý: Býfluga.
Beedrill
16DúfuteturDúfu-teturDúfa: Fugl af dúfuætt.
Tetur: Orð sem merkir eitthvað smátt, rýrt eða aumingjalegt (sbr. mann-tetur).
Pidgey
17DúfinnDúf-innDúf: Stofn orðsins dúfa.
-inn: Líklega karlkyns ending til að gera nafnið virðulegra.
Pidgeotto
18DúfnasturDúfn-asturDúfna: Eignarfall fleirtölu af dúfa.
Astur: Líklega stytting á kastur eða endingin -astur (sbr. hrað-astur), vísar til hraða.
Pidgeot
19RottótturRott-ótturRotta: Nagdýr.
-óttur: Lýsingarorðsending (sbr. flekk-óttur), merkir hér „sá sem er eins og rotta“.
Rattata
20HrottaHrott-aHrotti: Ofbeldisfullur maður, ruddi. Hljóðlíking við rotta.Raticate
21SpjótrungurSpjót-rungurSpjót: Lagvopn.
-rungur: Viðskeyti (sbr. spjátrungur, ungur).
Orðaleikur: Hljóðlíking við spjátrungur.
Spearow
22GeighegriGeig-hegriGeigur: Ótti, hrollur.
Hegri: Fugl af hegraætt.
Fearow
23ArðanArðanNaðra: Slanga/eiturormur. Orðið er Naðra skrifað afturábak (sbr. Ekans/Snake).Ekans
24AgnalsAgnalsSlanga: Snákur. Orðið er Slanga skrifað afturábak (sbr. Arbok/Cobra).Arbok
25LeifturskottaLeiftur-skottaLeiftur: Elding, bjarmi.
Skotta: kvenkyns gæluorð yfir eitthvað sem er lítið (sbr lítil stelpa). Vísar í skottið (eldinguna).
Pikachu
26ÞrumumúsÞrumu-músÞruma: Hávaði frá eldingu.
Mús: Nagdýr.
Raichu
27SandsnjáldurSand-snjáldurSandur: Jarðefni.
Snjáldur: Trýni eða nef (sbr. snjáldurmús).
Sandshrew
28SvöðusandurSvöðu-sandurSvöðusár: Djúpt sár (vísar í Slash).
Sandur: Jarðefni.
Orðaleikur: Vísar einnig í staðarheitið Skeiðarársand og svöðusár sandsins í gróðri þar.
Sandslash
29NáldurNál-durNál: Oddhvass hlutur (vísar í eitur/brodd).
-dur: Ending, líklega stytting eða hljóðlíking við kaldur/galdur.
Nidoran♀
30NálfrúNál-frúNál: Oddhvass hlutur (vísar í eitur/brodd).
Frú: Titill giftra kvenna (vísar í kvenkynið).
Nidorina
31NáldrottningNál-drottningNál: Oddhvass hlutur (vísar í eitur/brodd).
Drottning: Tignarheiti, eiginkona konungs.
Nidoqueen
32NáldurNál-durSjá nr. 29.
Sama nafn notað yfir bæði kynin á fyrsta stigi.
Nidoran♂
33NálherraNál-herraNál: Oddhvass hlutur (vísar í eitur/brodd).
Herra: Titill karlmanns (sbr. Nino).
Nidorino
34NálkonungurNál-konungurNál: Oddhvass hlutur (vísar í eitur/brodd).
Konungur: Æðsti stjórnandi ríkis.
Nidoking
35BleikálfurBleik-álfurBleikur: Liturinn (blandlitur af rauðu og hvítu).
Álfur: Goðsagnavera.
Clefairy
36BleikgoðiBleik-goðiBleikur: Liturinn (blandlitur af rauðu og hvítu).
Goði: Forn titill höfðingja, eða vísun í goð (guðleg vera).
Clefable
37HalatófaHala-tófaHali: Rófa á dýri.
Tófa: Refur.
Vulpix
38Nírófa-rófaNíu: Talan 9.
Rófa: Hali.
Orðaleikur: Hljómar eins og „Ný-rófa“.
Ninetales
39KrúttípúttKrútt-í-púttKrútt: Eitthvað sætt.
Pútt: Gæluyrði eða hljóðlíking. Rímorð til áherslu á krúttlegheit.
Jigglypuff
40KnúsfúsKnús-fúsKnús: Faðmlag.
Fús: Viljugur (vill knúsa).
Wigglytuff
41BlakildiBlak-ildiBlaka: Að slá vængjum (eða leðurblaka).
-ildi: Ending úr orðinu fiðrildi.
Zubat
42SkoltblakaSkolt-blakaSkoltur: Kjaftur, munnur (stór munnur).
Blaka: Leðurblaka.
Golbat
43KálhausKál-hausKál: Matjurt.
Haus: Höfuð.
Orðið er einnig notað um aulahátt („þú ert nú meiri kálhausinn“), heimskingi, bjáni
Oddish
44GlúmurGlúmurGlúmur: Fornt mannsnafn. Merkir einnig „dökkur“ eða „þungbúinn“.Gloom
45MiðurkollaMiður-kollaMiður: Slæmur, ógeðfelldur.
Kolla: Efsti hluti jurtar/blóm.
Orðaleikur: Vísar í froðuna sem myndast efst á gosdrykkjum og bjór (kallað kolla), hárkolla
Vileplume
46SníkillSníkillSníkill: lífvera sem lifir á annarri.Paras
47GróhýsillGró-hýsillGró: Æxlunareining sveppa.
Hýsill: Lífvera sem hýsir sníkjulífveru (sveppinn).
Parasect
48HnoðurliðiHnoður-liðiHnoðri: Hárbrúskur/ullarhnoðri.
Liði: Maður/vera (sbr. skipsáhöfn/liði).
Venonat
49BölflugaBöl-flugaBöl: Óhamingja, eitur, mein.
Fluga: Skordýr.
Venomoth
50GraflariGraflariGraflari: Sá sem grefur.
Orðaleikur: Slangur yfir kvensaman mann.
Diglett
51GraflararGraflar-arFleirtala af Graflari (þrír saman).Dugtrio
52MjágjarnMjá-gjarnMjá: Hljóð katta.
Gjarn: gefinn fyrir eitthvað, hefur tilhneigingu til einhvers.
Orðaleikur: Gjarn tengist líka orðinu garn sem er þráður úr ull til að prjóna eða hekla úr.
Meowth
53KlófessorKló-fessorKló: Oddhvöss nögl á fæti dýra.
-fessor: Ending úr prófessor (vísar í greind).
Persian
54MígrendiMígr-endiMígreni: Höfuðverkur.
Önd: Fugl.
Orðaleikur: Samsetning á „Mígreni“ og „Önd“.
Psyduck
55GyllinöndGyllin-öndGyllini: Gullhúðun.
Önd: Fugl.
Golduck
56SkapkötturSkap-kötturSkap: Geðvonska.
Köttur: Notað hér um villidýr/apa. Vísar í orðið skapvondur.
Mankey
57SkapiSkapiSkapi: Stytting á skapvondur eða skapstyggur.Primeape
58BlysrakkiBlys-rakkiBlys: Eldur, kyndill.
Rakki: Hundur.
Growlithe
59FunhundurFun-hundurFuni: Logi, eldur.
Hundur: Dýrategund.
Arcanine
60PottgormurPott-gormurPottormur: Óþekktarormur/krakki.
Gormur: Gorkúla, spírall, form með síendurteknum vafningum (mynstrið á maganum).
Poliwag
61HringekillHring-ekillHringur: Hringlaga mynstur.
Ekill: Sá sem ekur (eða hringekja).
Poliwhirl
62SpíralofsiSpíral-ofsiSpírall: Gormlaga mynstur.
Ofsi: Reiði.
Poliwrath
63TöfriTöfr-iTöfrar: Galdrar.Abra
64KúnstnerKúnstnerKúnstner: Listamaður (oft notað um töframenn eða sérvitringa). Úr dönsku kunstner.Kadabra
65GaldursforsetiGaldur-forsetiGaldur: Töfrar.
Forseti: Þjóðhöfðingi (æðsta stigið).
Alakazam
66ÞrekangiÞrek-angiÞrek: Kraftur, styrkur.
Angi: Barn, lítil vera.
Machop
67AflgarpurAfl-garpurAfl: Styrkur.
Garpur: Röskur maður, hetja.
Machoke
68FermundurFer-mundurFer: Fjórir (hefur fjórar hendur).
Mundur: Verndari/hönd (mannsnafn).
Machamp
69BjallgresiBjall-gresiBjalla: Klukka (til að klingja) en einnig ættbálkur skordýra.
Gresi: Jurt, gras.
Bellsprout
70GrátklukkaGrát-klukkaGrátur: Tár.
Klukka: Bjalla/blóm.
Weepinbell
71MeinlokaMein-lokaMein: Skaði eða sjúkdómur.
Loka: Gildra (planta sem lokar flugur inni).
Victreebel
72HolsepiHol-sepiHol: Holur að innan (sjávardýr eru oft hol), einnig „á kaf“, „mjög djúpt“ (vísar í eitur stinga)
Sepi: Totur, angar.
Tentacool
73GlytnirGlytn-irGlytta: Glæra, eitthvað með mörg augu, marglytta,
einnig Glit: ljómi, leiftur eða glampi, vísar í glampa frá ljóskúlum á höfði hans
Tentacruel
74AurgaurAur-gaurAur: Mold, leðja, jörð.
Gaur: Strákur/karl. Rímorð.
Geodude
75MöldungurMöld-ungurMold: Jarðvegur.
-ungur: Viðskeyti.
Orðaleikur: Vísar í orðatiltækið að „malda í móinn“, mótmæla nokkuð, sýna vægan mótþróa (vísar í þrjósku og þrætugirni þeirra).
Graveler
76BergjöfurBerg-jöfurBerg: Grjót.
Jöfur: Konungur, höfðingi.
Golem
77LogaldLog-aldLogi: Eldur.
-ald: Ending úr folald.
Ponyta
78EldklárEld-klárEldur: Logi.
Klár: Hestur.
Rapidash
79SljónSljónSljór: Seinlegur, bitlaus.
Jón: Algengt nafn, hér notað til persónugervingar.
Slowpoke
80SljónatanSljón-atanSljón: Sjá nr. 79.
Natan: Mannsnafn (rím við Jónatan).
Slowbro
81SegillSegillSegill: Segulstál, eitthvað sem dregur að sér málm.Magnemite
82SeglagerðiSegla-gerðiSeglar: Fleirtala af segull.
Gerði: Girðing eða samansafn.
Magneton
83AndvígurAnd-vígurÖnd: Fugl.
Vígur: Vopnfær/stríðs-.
Orðaleikur: Orðið andvígur merkir að vera á móti einhverju.
Farfetch’d
84ParfuglPar-fuglPar: Tveir (tveir hausar).
Fugl: Dýrategund.
Doduo
85ÞrítranaÞrí-tranaÞrí-: Þrír.
Trana: Stór, grár, hálslangur og háfættur fugl.
Orðaleikur: Fuglsnef/haus (sbr. að trana sér fram).
Dodrio
86KópangiKóp-angiKópur: Selungur.
Angi: Lítið barn/vera.
Seel
87SnæljónSnæ-ljónSnær: Snjór.
Sæljón: Selategund. Snæ + Sæljón.
Dewgong
88DrullupolliDrullu-polliDrullupollur: Vatnssorf með mold.
-i: Gælu-ending.
Grimer
89ForsprakkiFor-sprakkiFor: Leðja, skítur (sbr. forarpyttur).
Sprakkur: röskur, skjótur.
Orðaleikur: Forsprakki þýðir líka upphafsmaður og leiðtogi.
Muk
90SkelsællSkel-sællSkel: Hlífðarhjúpur.
Sæll: Glaður/ánægður. Rím við skel.
Shellder
91VígulkerVígul-kerVíg: Dráp/stríð (broddarnir).
Ígulker: Sjávardýr með broddum.
Cloyster
92HrollurHrollurHrollur: Skelfing, kuldi.Gastly
93ReimnirReim-nirReimleikar: Draugagangur.
-nir: Ending (sbr. greinir, reynir, annir).
Haunter
94VofurstiVof-urstiVofa: Draugur.
Ofursti: Tignargráða í hernum (vísar til styrks).
Gengar
95GránamaðkurGrána-maðkurGrár: Liturinn.
Gráni: Grár hestur eða grjót.
Ánamaðkur: Ormur af burstaætt sem lifir í mold.
Onix
96Dávi-viDá: Svefnástand, dáleiðsla.
-vi: Ending.
Drowzee
97LeiðslariLeiðsl-ariLeiðsla: Dáleiðsla.
-ari: Sá sem framkvæmir (sá sem dáleiðir).
Hypno
98KrabbakúturKrabba-kúturKrabbi: Skeldýr.
Kútur: Gæluorð, lítill strákur.
Krabby
99KrabbarbariKrab-barbariKrabbi: Skeldýr.
Barbari: Villimaður/stríðsmaður.
Kingler
100StuðboltiStuð-boltiStuð: Rafmagn, gleði.
Bolti: Hnöttur.
Voltorb
101StraumhnötturStraum-hnötturStraumur: Rafmagn.
Hnöttur: Kúla.
Electrode
102SeggaldinS-eggaldinS / Sex: Talan sex. Skrímslið samanstendur alltaf af sex eggjum sem mynda eina heild.
Eggaldin: Grænmeti.
Orðaleikur: Hljómar eins og Eggaldin, en skeytir S (fyrir sex) framan sem vísar til þess að þetta eru alltaf hópur af „Sex eggjum“
Exeggcute
103TálmatréTálma-tréTálmi: Hindrun (eða pálmi).
Tré: Planta. Orðaleikur við pálmatré.
Exeggutor
104BeinfariBein-fariBein: Hluti af beinagrind.
Fari: Sá sem ferðast eða ber eitthvað.
Cubone
105HnauskúpaHnaus-kúpaHnaus: Þykkur kökkur (eða haus).
Hauskúpa: Beinagrind höfuðs.
Marowak
106SpyrnirSpyrn-irSpyrna: Spark.
-ir: Gerandanafn.
Hitmonlee
107HneflaHnef-laHnefi: Krepptur hönd.
-la: Smækkunar- eða sagnarending.
Hitmonchan
108SleikjógnSleikj-ógnSleikjó: Sælgæti á pinna (eða að sleikja).
Ógn: Hætta/skelfing.
Lickitung
109Kígildi-gildiKíghósti: Slæmur hósti.
Gildi: Verðmæti eða hlutur.
Hljóðlíking við kíghósta.
Koffing
110PústaskrápurPústa-skrápurPúst: Útblástur.
Skrápur: Húð/roð (eða slæmur hlutur).
Weezing
111HorngrýtiHorn-grýtiHorn: Á dýri.
Harðgrýti: Hörð steintegund. Orðaleikur.
Rhyhorn
112SteinhyrningurStein-hyrningurSteinn: Grjót.

Einhyrningur: Goðsagnadýr.
Rhydon
113SæleggSæl-eggSæll: Hamingjusamur.
Egg: Egg.
Chansey
114FléttungurFlétt-ungurFlétta: Samtvinnun/jurt.
-ungur: Viðskeyti.
Tangela
115KengúrillKeng-úr-illKengúra: Pokadýr.
Úrillur: Fýlulegur og stuttur í spuna.
Kangaskhan
116SkolaldSkol-aldSkola: Þvo (vatn).
-ald: Ending úr orðum eins og folald eða jór (hestur).
Horsea
117SjáfnirSjáfn-irSjávar-: Eignarfall af sjór.
Fjölnir/Sleipnir: Goðsagnanöfn.
Seadra
118BleikhyrnaBleik-hyrnaBleikja: Fisktegund.
Hyrna: Horn (eða kvenkyns fiskur).
Goldeen
119FiskikóngurFiski-kóngurFiskur: Sjávardýr.
Kóngur: Konungur.
Seaking
120StirnirStirn-irStirna: Stjarna (eða að glampa).Staryu
121StirningurStirn-ingurStirnir: Sjá ofan.
-ingur: Stækkunarending.
Starmie
122HermiherraHermi-herraHerma: Að leika eftir.
Herra: Titill.
Mr. Mime
123LjásprettaLjá-sprettaLjár: Slátturverkfæri.
Spretta: Að hlaupa og líka að rekja eða skera upp saum.
Orðaleikur: Afbökun á orðinu engispretta.
Scyther
124TálgrýlaTál-grýlaTál: Svik, blekking eða tæling.
Grýla: Tröllskessa.
Jynx
125SpenndýrSpenn-dýrSpenna: Rafspenna.
Dýr: Skepna.
Orðaleikur: Hljómar eins og spendýr.
Electabuzz
126KvikyndiKvik-yndiKvika: Bráðið grjót.
Kynda: Að kveikja eld.
Orðaleikur: Vísar í kvikindi (ófreskja).
Magmar
127HrellibjallaHrelli-bjallaHrella: Að hræða/pína.
Bjalla: Skordýr.
Pinsir
128StórþjórStór-þjórStór: Mikill.
Þjór: Naut.
Tauros
129GreysleppaGrey-sleppaGrey: Aumingi.
Grásleppa: Fisktegund.
Magikarp
130BrimskrattiBrim-skrattiBrim: Öldurót.
Skratti: Djöfull/púki.
Gyarados
131LagargandurLagar-gandurLögur: Vatn/sjór.
Gandur: Reiðskjóti eða hestur, stundum nornar eða skrímsli (sbr. Jörmungandur eða Miðgarðsormur).
Lapras
132GervillGerv-illGervi: Eftirlíking.
-ill: Ending. Einnig fornt orð illr sem þýðir að vera tómur.
Orðaleikur: Vísar í orðið hermir, hlutur sem líkir eftir einhverju öðru raunverulegu.
Ditto
133SniðdýrSnið-dýrSnið: Lögun eða mynstur.
Dýr: Skepna.
Orðaleikur: „Sniðugt“ dýr (aðlögunarhæft).
Eevee
134MarbúiMar-búiMar: Haf/sjór.
Búi: Sá sem býr einhversstaðar, íbúi.
Vaporeon
135RafbúiRaf-búiRaf: Rafmagn (eða rafur).
Búi: Sá sem býr einhversstaðar, íbúi.
Jolteon
136GlóðbúiGlóð-búiGlóð: Eldur.
Búi: Sá sem býr einhversstaðar, íbúi.
Flareon
137GrafíkjaGrafík-jaGrafík: Tölvuteikning (Computer Graphics).
-ja: Ending (sbr. kirkja eða armbeygja). Hljóðlíking við gyðja.
Orðaleikur: Nafnið er orðaleikur. Það vísar til uppruna skrímslisins úr tölvugrafík, en hljóðlíkingin við gyðja gefur því goðsagnakenndan blæ.
Porygon
138KuðungiKuðung-iKuðungur: Skel.
-i: Smækkunarending (vísar í að hann er lítill og krúttlegur).
Náttúrufræði: Byggir á ammonítum, útdauðum sjávardýrum frá tímum risaeðlanna sem líktust smokkfiskum inni í sniglahúsi. Þeir steingerðust oft og eru með algengustu steingervingum sem finnast í dag.
Omanyte
139HolkrabbiHol-krabbiHolur: Tómur að innan.
Krabbi: Skeldýr.
Omastar
140BotnsetiBotn-setiBotn: Sjávarbotn.
Seti: Sá sem situr (eða set – jarðlag).
Náttúrufræði: Byggir á skeifukröbbum en þeir eru oft kallaðir „lifandi steingervingar“ því þeir hafa dvalið á sjávarbotninum, nánast óbreyttir, í meira en 400 milljónir ára – löngu fyrir tíma risaeðlanna!
Kabuto
141DjúpsaxiDjúp-saxiDjúp: Hafið.
Saxa: Að skera (með klóm).
Líffræði: Útlitið svipar til risavaxinna sjávarsporðdreka (Eurypterids) sem ríktu í höfunum í fyrndinni. Hann var ofurfljótur sundgarpur sem notaði stórar ljáir til að saxa bráð sína í hafdjúpunum.
Kabutops
142HiminváHimin-váHiminn: Loftið.
Vá: Hætta, ógn.
Náttúrufræði: Tengist flugeðlum (Pterosaurs eða Pterodactyls), ægileg fljúgandi skriðdýr sem ríktu í loftinu á tímum risaeðlanna.
Aerodactyl
143HrotþursHrot-þursHrota: Svefnhljóð.
Þurs: Jötunn, tröll.
Snorlax
144ÉljaskarfurÉlja-skarfurÉl: Snjókomubylur.
Skarfur: Fugl af ættkvísl sjófugla.
Articuno
145ÞórshaniÞórs-haniÞór: Þrumuguðinn.
Hani: Fugl.
Saga: Þórshani er raunverulegt íslenskt fuglaheiti. Goðsagnafugl sem stjórnar eldingum.
Zapdos
146BlossagaukurBlossa-gaukurBlossi: Eldglampi.
Gaukur: Fugl.
Orðaleikur: Hljómar eins og Hrossagaukur.
Moltres
147DreksprekDrek-sprekDreki: Ormur.
Sprek: Lítil spýta, eitthvað veiklulegt.
Dratini
148GrandormurGrand-ormurGrand: Eitthvað tignarlegt (sbr. Grand).
Ormur: Dreki.
Dragonair
149DrekvaxinnDrek-vaxinnDreki: Skrímsli.
Vaxinn: Fullorðinn, stór.
Dragonite
150TvímýtaTví-mýtaTví-: Tveir/tvöfalt.
Mýta: Goðsögn.
Mewtwo
151MýtaMýtaMýta: Goðsögn. Hljóðlíking við Mew.Mew

Önnur kynslóð

NúmerNafnUpprunaorðÞýðingEnska
152BleðillBleð-illBlað: Lauf á jurt.
-ill: Smækkunarending (sbr. snig-ill).
Chikorita
153ÞistilgumiÞistil-gumiÞistill: Stingandi jurt.
Gumi: Fornt orð yfir mann (sbr. brúðgumi).
Bayleef
154LaufjöfurLauf-jöfurLauf: Plöntuhluti.
Jöfur: Konungur eða höfðingi.
Meganium
155BrímirBrím-irBrími: Eldur eða bjarmi (skáldamál).
-ir: Nafnorðsending.
Cyndaquil
156GosiGos-iGos: Eldgos.
Gosi: Ábyrgðarlaus maður, galgopi.
Quilava
157BálhamurBál-hamurBál: Mikill eldur.
Hamur: Húð, gervi eða skap (sbr. hamhleypa).
Typhlosion
158SmádíllSmá-díllSmár: Lítill.
Díll: Blettur,
Orðaleikur: Stytting á krókódíll.
Totodile
159KrókaldKrók-aldKrókur: Krókódíll.
-ald: Ending (sbr. folald).
Croconaw
160SkolthrottiSkolt-hrottiSkoltur: Kjaftur (stór munnur).
Hrotti: Ruddi, ofbeldismaður.
Feraligatr
161SkottspottSkott-spottSkott: Rófa.
Spott: Að spotta (sjá til), eða spotti (band/slangur yfir rófu).
Sentret
162RandahnoðriRanda-hnoðriRönd: Rák (röndóttur).
Hnoðri: Hárbrúskur eða lítill hlutur.
Furret
163TaktsetiTakt-setiTaktur: Reglulegt hljóðfall (klukka).
Seti: Sá sem situr (á grein).
Hoothoot
164NáttyglaNátt-yglaNátt: Nótt.
Ygla: Að vera brúnaþungur (sbr. ugla).
Noctowl
165BjallveigBjall-veigBjalla: Skordýr.
Veig: Kvenmannsnafn/ending (sbr. Rannveig eða Bjarnveig), þýðir einnig drykkur.
Ledyba
166MaríuhetjaMaríu-hetjaMaríuhæna: Skordýr.
Hetja: Vaskur maður (vísar í ofurhetjuútlit).
Ledian
167SpindillSpindillSpindill: Snælda (tengist að spinna vef).Spinarak
168VefariVefariVefari: Sá sem vefur (könguló).Ariados
169SpellblakaSpell-blakaSpell: Skemmdir, skaði.
Blaka: Leðurblaka.
Crobat
170GlótutlaGló-tutlaGló: Að glóa (ljós).
Tutla: Ögn, lítill hlutur (sbr. tutla í merkingunni totta/drekka eða smátt dýr).
Chinchou
171LýsaLýsaLýsa: Fisktegund (hvítur fiskur af þorskaætt) eða sagnorðið að lýsa (gefa ljós).Lanturn
172StuðstúfaStuð-stúfaStuð: Rafmagn/gleði.
Stúfa: Stúlkubarn (eða stúfur – eitthvað stutt eða lítið).
Pichu
173BleiklyndurBleik-lyndurBleikur: Liturinn.
Lyndur: Skapgerð.
Cleffa
174OgguponsaOggu-ponsaOgguponsa: Mjög lítið (orðatiltæki).Igglybuff
175EgglaEgg-laEgg: Vísar í skurnina sem hún situr í.
-la: Kvenkyns smækkunar- og gæluending (sbr. dúlla, perla eða krútta).
Skýring: Nafnið er vísun í hugtakið Gæfuegg.
Togepi
176KlakvængjaKlak-vængjaKlak: Að klekjast út (eða klaki).
Vængja: Með vængi.
Togetic
177SpáfuglSpá-fuglSpá: Framtíðarsýn, spámaður.
Fugl: Dýr.
Natu
178HyglfygliHygl-fygliHygl: Dregið af hygginn (vitur) eða hugur.
Fygli: Fuglar (safnheiti).
Xatu
179SkærgemsiSkær-gemsiSkær: Vísar til skæra (verkfærisins) til að rýja hann með. Orðið er einnig tvírætt þar sem skær merkir bjartur (ljósið á halanum).
Gemsi: Stytting á gemlingur (vetrargömul kind).
Orðaleikur: „gemsi“ er slangur yfir farsíma, sem er raftæki.
Mareep
180HnykilvægurHnykil-vægurHnykill: Garnhnoðri.
Vægur: Mildur (eða ending til samræmis).
Orðaleikur: Hljómar eins og Mikilvægur
Flaaffy
181StandlambiStand-lambiStanda: Að standa uppréttur.
Lambi: Ung sauðkind.
Orðaleikur: Nafnið er hljóðlíking við Standlampa (gólflampa). Sem passar því halinn á því lýsir af sér birtu líkt og lampi og það var notað sem viti fyrir sjófarendur.
Ampharos
182FaldliljaFald-liljaFaldur: Skrautlegur höfuðbúnaður eða felling.
Lilja: Blóm.
Bellossom
183DaggarögnDaggar-ögnDögg: Vatnsdropar.
Ögn: Lítið korn.
Orðaleikur: Nafnið er hljóðlíking við Agnarögn, sem er eitthvað örlítið eða smátt.
Marill
184ÚðingurÚð-ingurÚði: Vatnsúði.
-ingur: Ending.
Azumarill
185GervitréGervi-tréGervi: Eftirlíking.
Tré: Planta.
Sudowoodo
186GormkartaGorm-kartaGormur: Spírall (á maganum).
Karta: Froskdýr.
Politoed
187HoppurtHopp-urtHopp: Að stökkva.
Urt: Jurt/planta.
Hoppip
188SkoppklukkaSkopp-klukkaSkopp: Að skoppa.
Klukka: Blóm (bláklukka).
Skiploom
189HviðukollaHviðu-kollaHviða: Vindhviða.
Kolla: Blómkollur/Fífill (sem fýkur).
Orðaleikur: Hljóðlíking við Biðukollu.
Jumpluff
190HalamundurHala-mundurHali: Rófa.
Mundur: Hönd (sem heldur um) eða mannsnafn.
Aipom
191SólkarnSól-karnSól: Stjarnan.
Karn: Dregið af kjarni (fræ) eða korn.
Sunkern
192SumarbráSumar-bráSumar: Árstíð.
Brá: Augnhár/blóm (sbr. Baldursbrá).
Sunflora
193FlugudrekiFlugu-drekiFluga: Skordýr.
Dreki: Skrímsli.
Orðaleikur: Nafnið er afbökun á orðinu Drekafluga, þar sem orðhlutunum er snúið við. Myndar jafnframt orðaleik við leikfangið flugdreka.
Yanma
194FenjapeðFenja-peðFen: Mýri/votlendi.
Peð: Lítil vera (sbr. peð í skák).
Wooper
195MýrarboltiMýrar-boltiMýri: Votlendi.
Bolti: Hnöttur (vísar í bústinn líkama).
Quagsire
196HuginnHuginnHuginn: Annar hrafna Óðins. Merkir „hugur“ eða „hugsun“. Vísar í sálræna krafta.Espeon
197MyrkurboðiMyrkur-boðiMyrkur: Dimma.
Boði: Sendiboði eða fyrirboði.
Umbreon
198KráklingurKrák-lingurKráka: Fugl.
-lingur: Smækkun.
Orðaleikur: Kræklingur er algengt skeldýr við strendur Íslands.
Murkrow
199SljóannesSljó-annesSljó: Vísar í orðið sljór og forvera hans, Sljón og Sljónatan.
-annes: Ending dregin af mannsnafninu Jóhannes.
Nafnahefð: Tengir nafnaröð í þróunarlínunni: Jón (Sljón) -> Jónatan (Sljónatan) -> Jóhannes (Sljóannes). Jóhannes þykir virðulegra og lengra nafn sem hæfir konunginum.
Orðaleikur: Endingin -annes er einnig hljóðlíking við enska tignarheitið Highness (Your Highness).
Slowking
200MisfariMis-fariMis-: Forskeyti (mistök/slæmt).
Fari: Vera. Misfari getur þýtt óhapp eða ógæfa.
Misdreavus
201ÓfekkturÓ-fekkturÓ: Bókstafurinn O eða neitun.
Fekktur: Er afbökun á orðinu þekktur, vísar í egypskt myndmál/bókstafi/rúnir.
Unown
202ÞrekfífillÞrek-fífillÞrek: Þol.
Fífill: Blóm, en einnig „fífl“ (aulabárður).
Wobbuffet
203TvíraffiTví-raffiTví: Tveir (tveir hausar).
Raffi: Stytting á Gíraffi.
Girafarig
204KöngulhausKöngul-hausKöngull: Á barrtré.
Haus: Höfuð.
Orðaleikur: Hljómar eins og þöngulhaus.
Pineco
205BarrvígiBarr-vígiBarr: Nálarnar á trénu.
Vígi: Virki/kastali.
Forretress
206SkottormurSkott-ormurSkott: Rófa.
Ormur: Slanga
Dunsparce
207SviffautiSvif-fautiSvif: Að svífa.
Fauti: Ofstopamaður, harðhentur og ofbeldisfullur, fantur
Gligar
208StálnamaðkurStálna-maðkurStálna: Að harðna/verða að stáli.
Maðkur: Ormur.
Steelix
209UrriðiUrriðiUrriði: Fiskur. Hér dregið af sagnorðinu að urra.Snubbull
210GjammbíturGjamm-bíturGjamm: hundgá, gelt.
Bítur: Sá sem bítur.
Granbull
211ÍgulhnötturÍgul-hnötturÍgulker: Sjávardýr með broddum.
Hnöttur: Kúla.
Qwilfish
212StálsprettaStál-sprettaStál: Málmur.
Spretta: Að hlaupa, líka að rekja eða skera upp saum.
Vísar í Ljáspretta Nr. 123
Scizor
213SkriðubúriSkriðu-búriSkriða: Grjóthrun eða brött fjallshlíð þakin lausagrjóti.
Búri: Dverganafn úr Völuspá, en merkir einnig matargeymsla eða búr.
Goðafræði: Buri er dvergur sem nefndur er í Dvergatalinu í 13. erindi Völuspár.
Líffræði: Skrímslið safnar berjum og geymir þau inni í skelinni (búrinu sínu).
Shuckle
214HornuxiHorn-uxiHorn: Á dýri.
Uxi: Stór bjalla (sbr. tordýfill).
Heracross
215SlævarSlæ-varSlægur: Lúmskur.
Var: Varfærinn.
Sneasel
216SkífuhúnnSkífu-húnnSkífa: Tungl/máni (á enninu).
Húnn: Bjarnarhúnn.
Teddiursa
217BaugbjörnBaug-björnBaugur: Hringur.
Björn: Dýr.
Ursaring
218LetiglóðLeti-glóðLeti: Að vera latur.
Glóð: Lifandi kol/eldur.
Orðaleikur: Nafnið er hljóðlíking við Letiblóð
Slugma
219KvikuhettaKviku-hettaKvika: Bráðið grjót.
Hetta: Húfa eða snigilhús.
Magcargo
220SvíliSví-liSvín: Grís.
-li: Smækkun (sbr. kríli).
Orðaleikur: Nafnið er gamansöm vísun í orðið Svili, sem er heiti yfir karlkyns maka systkinis maka)
Swinub
221LubbagölturLubba-gölturLubbi: Mikið/úfið hár.
Göltur: Svín.
Piloswine
222KóralsunnaKóral-sunnaKórall: Sjávarlífvera.
Sunna: Sól (lögunin og litirnir).
Corsola
223SuguggiSug-uggiSuga: Að sjúga/sogskál.
Uggi: Fiskuggi.
Remoraid
224SkolkrabbiSkol-krabbiSkola: Að þvo með vatni
Krabbi: Hér notað um kolkrabba.
Octillery
225VistberiVist-beriVistir: Matvæli/birgðir.
-beri: viðskeyti sem lýsir einhverjum sem ber eitthvað á sér (sbr. bréfberi, boðberi, blaðberi)
Delibird
226BreiðskataBreið-skataBreiður: Víður (vænghaf).
Skata: Flatur fiskur.
Mantine
227StálkiStál-kiStál: Málmur.
-ki: Ending (sbr. álki).
Orðaleikur: Orðmynd af fuglsheitinu Fálki.
Skarmory
228VítisvargurVítis-vargurVíti: Helvíti.
Vargur: Úlfur/hundur.
Houndour
229HelrakkiHel-rakkiHel: Dauðaríkið.
Rakki: Hundur.
Houndoom
230HylþengillHyl-þengillHylur: Djúpur staður í á eða vatni.
Þengill: Konungur.
Kingdra
231FílingurFíl-ingurFíll: Stórt dýr.
-ingur: Smækkun (lítill fíll).
Orðaleikur: Nafnið er tvírætt því Fílingur er einnig algengt slanguryrði yfir góða stemningu, gleði eða „stuð“ (að vera í góðum fíling). Það passar vel við þennan glaðværa fíl.
Phanpy
232ErkifanturErki-fanturErki-: Áhersluforliður (arch-).
Fantur: Hrotti, en stundum notað um fíla (ele-phant).
Orðaleikur: Vísun í orðið Erkifjandi
Bókmenntavísun: Nafnið er orðaleikur sem vísar í Ollifanta (e. Oliphaunts) úr Hringadróttinssögu.
Donphan
233Grafíkja2Grafík-ja-tvöGrafík: Tölvuteikning (Computer Graphics).
-ja: Kvennkyns ending (sbr. kirkja). Hljóðlíking við gyðja.
² (Annað veldi): Tölustafurinn er í yfirskrift. Þetta vísar í annað veldi í stærðfræði (x^2). Í tækniheiminum er þetta notað til að tákna útgáfu 2.0, enda er skrímslið uppfærð og betrumbætt útgáfa af forvera sínum (Sjá nr. 137).
Porygon2
234HvíslhjörturHvísl-hjörturHvísl: Að hvísla, vísar til dulrænna eiginleika skrímslisins.
Hjörtur: Dýrategund.
Orðaleikur: „Hvísl“ er hér afbökun á orðinu kvísl (grein, klofið, sundurgreint), sem vísar til lagsins á hornum hans.
Stantler
235BlikksillBlikk-sillBlikk: Hljóðlíking eða afbökun á orðinu Bikkill. Bikkill er íslenskt orð yfir hund (oft notað um smáhunda) og vísar hér til hundategundarinnar Beagle, sem skrímslið er byggt á.
-sill: Ending dregin af orðinu Pensill. Skottið á skrímslinu seytir vökva og virkar eins og málarapensill sem það notar til að merkja yfirráðasvæði sitt.
Smeargle
236SlegillSlegillSlegill: Verkfæri til að slá með.Tyrogue
237KringluhvirfillKringlu-hvirfillKringla: Hringur/skífa.
Hvirfill: Toppur, snúningur.
Hitmontop
238KosskjassKoss-kjassKoss: Að kyssa.
Kjass: Gælur.
Smoochum
239StraumangiStraum-angiStraumur: Rafmagn.
Angi: Barn/lítill.
Elekid
240GosögnGos-ögnGos: Eldgos.
Ögn: Lítið korn/barn.
Magby
241HnitgeymirHnit-geymirHnit: Afbökun á orðinu Nyt sem er fornt orð yfir mjólk
Geymir: Tankur.
Miltank
242GlaumurGlaumurGlaumur: Gleði, hávaði, fögnuður.Blissey
243ÞrumuóhmÞrumu-óhmÞruma: Hávært hljóð.
Óhm: Mælieining rafviðnáms.
Raikou
244FunagarmurFuna-garmurFuni: Eldur.
Garmur: Hundur eða vættur (Garmur í Ragnarökum).
Entei
245LagarvaldurLagar-valdurLögur: Vatn.
Valdur: Stjórnandi.
Suicune
246LirfukríliLirfu-kríliLirfa: Þroskastig sumar skordýra.
Kríli: Lítið barn.
Larvitar
247GífurpúpaGífur-púpaGífur: Tröll/stór.
Púpa: Hylki.
Pupitar
248GramjöfurGram-jöfurGramur: Reiður, eða konungur (sbr. gramur í fornu máli).
Jöfur: Konungur.
Tyranitar
249MardvaliMar-dvaliMar: Haf/sjór.
Dvali: Svefn, eða sá sem dvelur.
Lugia
250GlótranaGló-tranaGló: Að glóa (eldur/gull).
Trana: Fugl.
Ho-oh
251GróðursællGróður-sællGróður: Plöntur.
Sæll: Hamingja/blessun.
Celebi

Þriðja kynslóð

NúmerNafnUpprunaorðÞýðingEnska
252GekklingurGekk-lingurGekkó: Eðluegundin.
-lingur: Smækkunarending (sbr. kettlingur, yrðlingur).
Treecko
253ÞyrilkembaÞyril-kembaÞyrill: Snúningur/planta.
Kemba: Kambur (greiða/fax).
Grovyle
254SnarpharriSnarp-harriSnarpur: Röskur, beittur eða fljótur.
Harri: Fornt orð yfir konung.
Sceptile
255GlóðungiGlóð-ungiGlóð: Brennandi kol/hiti.
Ungi: Fuglsungi.
Torchic
256HanaslagurHana-slagurHani: Karlkyns hænsnfugl.
Slagur: Bardagi.
Orðatiltæki: „Hanaslagur“ er barátta eða keppni.
Combusken
257LogaleggurLoga-leggurLogi: Eldur.
Leggur: Fótleggur.
Lýsing: Þekktur fyrir öflugar spyrnur.
Blaziken
258PollapésiPolla-pésiPollur: Smátjörn, smá dæld með vatni í.
Pési: Strákur/gæi.
Orðaleikur: Vísar í „Pollagalla“ og að vera polli (lítill strákur).
Mudkip
259MýrartraðkiMýrar-traðkiMýri: Votlendi.
Traðki: Sá sem treður.
Marshtomp
260LeðjujötunnLeðju-jötunnLeðja: Eðja/drulla.
Jötunn: Stór og sterkur (tröll).
Swampert
261HvolpbíturHvolp-bíturHvolpur: Ungur hundur.
Bítur: Sá sem bítur.
Poochyena
262ÚlfúðÚlf-úðÚlfur: Rándýr.
-úð: Ending (sbr. andúð, dulúð, harðúð), ending notuð yfir framkomu eða hugarfar.
Orðaleikur: Úlfúð er til í íslensku og merkir fjandskapur, deilur eða illindi.
Mightyena
263SlynkurSlynkurSlynkur: Snögg truflun á hreyfingu, rykkur eða kænska.Zigzagoon
264BeinskeittaBein-skeittaBeinn: Að fara í beinni línu.
Skeyta: Að skjóta/senda.
Orðaleikur: Vísar í lýsingarorðið beinskeyttur (hittinn/hreinskilinn).
Linoone
265RassmaðkurRass-maðkurRass: Bakhluti.
Maðkur: Ormur.
Wurmple
266ReifangiReif-angiReifar: Hvítt léreft sem ungbörn voru vafin í (reifuð).
Angi: Barn, lítil vera.
Uppruni: Dregið af orðunum reifastrangi/reifabarn, í gamla daga voru börn voru reifuð (vafin þétt) fyrstu mánuðina til að tryggja beinan vöxt og hlýju.
Silcoon
267SkrúðildiSkrúð-ildiSkrúð: Skrautklæði eða litskrúð.
Fiðrildi: Skordýr.
Beautifly
268HörkupúpaHörku-púpaHarka: Harður/seigur.
Púpa: Umbreytingarstig skordýra.
Cascoon
269EiturmölurEitur-mölurEitur: Skaðlegt efni.
Mölur: Náttfiðrildi.
Dustox
270FlotblaðFlot-blaðFlot: Að fljóta.
Blað: Laufblað (vatnalilja).
Lotad
271HrekkjapaddaHrekkja-paddaHrekkur: Grikkur.
Padda: Smádýr.
Þjóðsaga: Byggt á Kappa, japönskum vatnsvættum sem þekktir eru fyrir hrekkjalæti.
Lombre
272DansanasDans-anasDans: Hreyfing við tónlist.
Ananas: Ávöxtur.
Húmor: Lítur út eins og stór, glaður ananas sem elskar að dansa. Reyndu að segja nafnið 5 sinnum eins hratt og þú getur.
Ludicolo
273HnetukollurHnetu-kollurHneta: Akarn.
Kollur: Höfuð.
Seedot
274TrjálfurTrj-álfurTré: Planta.
Álfur: Hulduvera.
Orðaleikur: Hljómar eins og „sjálfur“.
Nuzleaf
275VindvargurVind-vargurVindur: Loft sem blæs.
Vargur: Úlfur, rándýr, friðlausir menn eða veðurvargur (ofsaveður).
Bókmenntir: Vísar í ljóðið „Vindurinn Vargur„.
Shiftry
276SvölungurSvöl-ungurSvala: Fuglategund.
Ungur: Lítill/ungur.
Taillow
277SvólsvalaSvól-svalaSvól: Hljóðlíking við enska orðið Swole/Swell (bólgin/stolt).
Svala: Fuglategund.
Orðaleikur: „Svól“ er vísun í slanguryrði sem notað er um fólk með mjög mikla vöðva.
Swellow
278VængjávurVængj-ávurVængur: Útlimur notaður til flugs.
Mávur: Sjófugl.
Wingull
279PóstíkaniPóst-íkaniPóstur: Sendibréf.
Pelíkani: Fuglategund.
Pelipper
280ÁrariÁr-ariÁra: Orka/útgeislun.
-ari: Persónuending.
Ralts
281ÁradísÁra-dísÁra: Orka/útgeislun.
Dís: Kvenkyns vættur.
Kirlia
282VerndardísVerndar-dísVernd: Gæsla.
Dís: Kvenkyns vættur/gyðja.
Gardevoir
283PollastiklariPolla-stiklariPollur: Smátjörn, smá dæld með vatni í, lítill strákur.
Stikla: Að hlaupa, fleyta kerlingar á vatni
Náttúrufræði: Skordýrið Tjarnastiklari skýst eftir vatnafletinum án þess að sökkva.
Surskit
284GrímumölurGrímu-mölurGríma: Andlitshula, dulargervi.
Mölur: Náttfiðrildi.
Masquerain
285FýlusveppurFýlu-sveppurFýla: Vond lykt eða að vera fúll.
Sveppur: Gróplanta.
Shroomish
286TeygjusveppurTeygju-sveppurTeygja: Að lengja (hendurnar).
Sveppur: Gróplanta.
Breloom
287SlappiSlapp-iSlappur: Máttlaus, latur.Slakoth
288HamhleypaHam-hleypaHamur: Húð, skinn eða gervi.
Hleypa: Að hlaupa.
Þjóðsaga: Hamhleypa er sá sem skiptir um ham eða skass, geðillur maður.
Vigoroth
289SlakurSlakurSlakur: Máttlítill, sljór, óduglegur. Í nútíma þýðing einhver sem er áhyggjulaus, rólegur.Slaking
290RótarsugaRótar-sugaRót: Neðanjarðarhluti trjáa.
Suga: Sýgur næringu.
Nincada
291ÞeysiflugaÞeysi-flugaÞeysa: Að fara hratt.
Fluga: Skordýr.
Ninjask
292ÖrdeyðaÖr-deyðaÖr: Forskeyti sem táknar neitandi eða herðandi eða tómleika.
Deyða: Dauði/dráp.
Hugtak: Tómt hylki (ör) tengt dauðanum.
Dularfullt: Þegar Þeysifluga þróast skilur hún eftir sig tóma skel. Skelin lifnar svo við.
Shedinja
293PískurPískurPískur: Hvísl eða lágt hljóð.Whismur
294GargariGarg-ariGarg: Öskur.
-ari: Gerandi.
Loudred
295ÆrandiÆr-andiÆra: Að gera heyrnarlausan.
-andi: Lýsingarháttur.
Exploud
296GlímukúturGlímu-kúturGlíma: Íslensk þjóðaríþrótt.
Kútur: Lítill strákur.
Makuhita
297GlímujötunnGlímu-jötunnGlíma: Bardagi.
Jötunn: Stórvaxin vera.
Hariyama
298VatnakríliVatna-kríliVatn: Stöðuvatn.
Kríli: Eitthvað mjög lítið.
Azurill
299ÁttvitiÁtt-vitiÁtt: Höfuðáttir (Norður, suður…).
Viti: Vísar í vit (nef/munnur) eða vita (snúa í ákveðna átt).
Orðaleikur: Nafnið er bein hljóðlíking við Áttavita. Nefið á honum er segulmagnað og vísar alltaf í norður.
Nosepass
300MjálingurMjá-lingurMjá: Kattahljóð.
-lingur: Smækkunarorð, sbr kettlingur.
Skitty
301FínmjállFín-mjállFínn: Glæsilegur.
Mjáll: Hvítur (ljós, birta, hreinleiki, fegurð) eða mjálm.
Delcatty
302SmargörðurSmar-görðurSmaragður: Fagurgrænn gimsteinn.
Görður: Vörn/gleraugu.
Sableye
303GlefsirGlefsirGlefsa: Að bíta/glefsa.Mawile
304JárnlingurJárn-lingurJárn: Málmur.
-lingur: Smækkunarending.
Aron
305StálbíturStál-bíturStál: Málmur.
Bítur: Japla á með tönnunum.
Lairon
306StálvargurStál-vargurStál: Brynja, klæddur stáli.
Vargur: Rándýr, útlagi eða skaðræðisdýr.
Aggron
307ÍhugullÍhugullÍhugull: Sá sem hugsar djúpt eða stundar hugleiðslu.Meditite
308HuggarpurHug-garpurHugur: Andlegur styrkur.
Garpur: Hetja.
Medicham
309NeistahvolpurNeista-hvolpurNeisti: Rafneisti.
Hvolpur: Ungur hundur.
Electrike
310RafmakkiRaf-makkiRaf: Rafmagn.
Makki: Fax (á hesti) eða efri hluti háls, einnig rakki (hundur).
Manectric
311RótariRót-ariRóteind: Jákvætt hlaðin ögn.
Slangur: Aðstoðarmaður (Roadie).
Plusle
312RafariRaf-ariRafeind: Neikvætt hlaðin ögn.Minun
313BlysflugaBlys-flugaBlys: Eldur/ljós.
Fluga: Skordýr.
Volbeat
314GlóðarflugaGlóðar-flugaGlóð: Að glóa, logandi, rautt heitt efni í kolum.
Fluga: Skordýr.
Illumise
315ÞyrnirósÞyrni-rósÞyrnirós: Ævintýrapersóna.Roselia
316ÞambiÞambiÞamba: Að drekka/gleypa mikið.Gulpin
317SvelgurSvelgurSvelgur: Hylur eða sá sem svelgir í sig mat.Swalot
318RifkjafturRif-kjafturRífa: Að tæta.
Kjaftur: Munnur.
Carvanha
319TundurkarlTundur-karlTundur: Sprengiefni/Tundurskeyti.
Karl: Vísun í hákarl.
Orðaleikur: Hákarl sem er tundurskeyti.
Sharpedo
320HafboltiSjó-boltiHaf: Sjórinn, hafið.
Bolti: Hnöttur, kúla, eitthvað stórvaxið.
Wailmer
321HafhveliSjó-hveliHaf: Sjórinn, hafið.
Hveli: Hvalur, hvelfing, eitthvað bungulagað og stórt.
Wailord
322KvikaKvikaKvika: Bráðið grjót.Numel
323KamelínaKamel-ínaKamel: Kameldýr.
Kamína: Ofn, sérstök gerð af eldstó.
Camerupt
324KvikbakaKvik-bakaKvika: Eldur.
Baka: Skjaldbaka.
Torkoal
325SkoppgrísSkopp-grísSkoppa: Að hoppa eða endurkastast (eins og bolti).
Grís: Ungt svín.
Spoink
326SeiðsvínSeið-svínSeiður: Forn norrænn galdur eða hugræn orka
Svín: Klaufdýr.
Grumpig
327SpandlaSpan-dlaSpinna: Snúningur.
Panda: Pandabjörn, dýr.
Spinda
328GryfjukjafturGryfju-kjafturGryfja: Hol/gildra.
Kjaftur: Munnur.
Trapinch
329TitringurTitringurTitringur: HristingurVibrava
330SandrekiSan-drekiSandur: Eyðimörk.
Dreki: Skrímsli.
Flygon
331SpíssþeytirSpíss-þeytirSpíss: Oddur.
Þeytir: Sá sem kastar/þeytir.
Cacnea
332NáttþyrnirNátt-þyrnirNátt: Nótt.
Þyrnir: Gaddur/Kaktus.
Cacturne
333BláhnoðriBlá-hnoðriBlár: Liturinn.
Hnoðri: Ullarhnoðri, skýjahnoðri.
Swablu
334SöngvængjaSöng-vængjaSöngur: Lag.
Vængja: Fluglimur fugls.
Altaria
335KlómangurKló-mangurKló: oddhvöss nögl á dýrsfæti.
Mangur: Ætt lítilla rándýra sem drepa eitraðar slöngur, mongús.
Zangoose
336HjuggormurHjugg-ormurHöggva: Að slá/bítal, úr danska orðinu hugge.
Ormur: Slanga
Orðaleikur: Vísar í orðið höggormur
Seviper
337MánateinnMána-teinnMáni: Tunglið.
Steinn: Grjót.
Hljóðlíking: Mánasteinn.
Lunatone
338SólgrýtiSól-grýtiSól: Stjarna.
Grýti: Bergtegund.
Solrock
339LeirskeggiLeir-skeggiLeir: Botnfall.
Skeggi: Sá sem er með skegg (veiðihár).
Barboach
340VasskeggurVas-skeggurVatn: (Vass er talmál/framburður).
Skegg: Veiðihár.
Whiscash
341KlóalabbiKlóa-labbiKlær: Oddhvassar neglur á dýrum.
Labbi: Gælunafn á krabba, smásnáði.
Corphish
342HrellilabbiHrelli-labbiHrella: Að hræða.
Krabbi: skeldýr, skelfiskar
Crawdaunt
343LeirsnúðurLeir-snúðurLeir: leðjukenndur jarðvegur.
Snúður: Hlutur sem snýst.
Baltoy
344LeirgoðLeir-goðLeir: leðjukenndur jarðvegur.
Goð: Skurðgoð.
Claydol
345SteiljaStei-ljaStein: Steingervingur.
Lilja: Blóm.
Lileep
346HniljaHni-ljaHneppa: Að binda/festa, króa, loka inni.
Lilja: Blóm.
Cradily
347FornklóForn-klóForn: Gamall.
Kló: Oddhvöss nögl á fæti dýra.
Anorith
348BeltisgeirBeltis-geirBeltisdýr: Stuttfætt brynvarin spendýr.
Geir: Vopn/spjót (klærnar).
Armaldo
349RæfillRæfillRæfill: Aumingi eða rýr (ljótur) fiskur.Feebas
350MílódísMíló-dísMíló: Vísun í Venus frá Míló.
Dís: Verndarvættur/gyðja.
Menning: Míló vísar í marmarastyttuna Venus frá Míló.
Goðafræði: Í norrænni goðafræði eru dísir kvenkyns verndarvættir, gyðjur eða fagrar verur.
Milotic
351VeðurlíkiVeður-líkiVeður: Aðstæður í lofthjúp.
Líki: Gervi/mynd.
Eiginleiki: Grunnformið sem breytist eftir veðri. Önnur form þess eru: Bjartviðri, Vætutíð, Kafald
Castform
351aBjartviðriBjart-viðriBjart: Skært/ljóst.
Viðri: Veður.
Veðurfræði: Gott veður og sólskin.
Sunny form
351bVætutíðVætu-tíðVæta: Rigning/vatn.
Tíð: Tímabil/veðurfar.
Veðurfræði: Vætutíð er notað yfir rigningartímabil.
Rainy form
351cKafaldKaf-aldKaf: Að vera í kafi/djúpt.
-ald: Ending.
Veðurfræði: Kafald er gamalt orð yfir mjög þétta snjókomu.
Snowy form
352LitbrigðirLit-brigðirLitur: litarefni; útlit, yfirbragð
Bregða: breyting, umskipti, rof.
Eiginleiki: Breytir um lit/gerð
Kecleon
353SkuggabrúðaSkugga-brúðaSkuggi: Myrkur.
Brúða: Leikfang.
Shuppet
354BölbrúðaBöl-brúðaBöl: Ólán/bölvun.
Brúða: Leikfang.
Banette
355RökkurkúpaRökkur-kúpaRökkur: Hálf-myrkur.
Kúpa: Hauskúpa.
Duskull
356MyrklópiMyr-klópiMyrkur: Skuggi.
Kýklópi: Eineygður risi úr grískum hetjusögum (Cyclops)
Dusclops
357HitabeltingurHitabelt-ingurHitabelti: Svæði við miðbaug jarðar.
-ingur: Upprunaending.
Tropius
358HljómurHljómurHljómur: Tónn eða ómur.Chimecho
359Váboði-boðiVá: Hætta.
Boði: fyrirboði, sá sem tilkynnir, orðsending.
Saga: Skynjar hamfarir fyrirfram og reynir að vara við, en var í gamla daga oft misskilinn sem orsakavaldur þeirra.
Absol
360KvíkkiKvíkkiHví: Af hverju.
Ekki: Neitun.
Orðaleikur: Hljóðlíking við hví-ekki
Wynaut
361SnjókríliSnjó-kríliSnjór: Frosin úrkoma.
Kríli: Lítil vera.
Snorunt
362FrostgrímaFrost-grímaFrost: Kuldi.
Gríma: Andlitshula, dulargervi.
Glalie
363KúluselurKúlu-selurKúla: Hnöttur.
Selur: Sjávarspendýr.
Spheal
364Séljón-ljónSelur: Dýrið.
Ljón: Konungur dýranna.
Orðaleikur: Hljómar eins og Sæljón.
Sealeo
365RostkóngurRost-kóngurRostungur: Stórt sjávarspendýr.
Kóngur: Æðsti valdsmaður ríkis.
Walrein
366PerluskelPerlu-skelPerla: Dýrgripur.
Skel: Hlíf.
Clamperl
367GinurGin-urGin: Stór kjaftur.
-ur: Karlkynsending.
Huntail
368DjúpdísDjúp-dísDjúp: Hafið.
Dís: Fögur vættur.
Gorebyss
369FornuggiForn-uggiFortíð: Gamall tími.
Uggi: Sundfæri fiska.
Náttúrufræði: Byggir á raunverulegum fiski, Blágómu, sem er ættaður af fornum steinbítsættum. Er í útrýmingahættu.
Relicanth
370HjartahlýriHjarta-hlýriHjarta: Ást, hjartalaga.
Hlýri: Fisktegund.
Orðaleikur: Hljómar eins og hjartahlýja
Luvdisc
371SkalladrekiSkalla-drekiSkalli: Höfuðhögg.
Dreki: Skrímsli, goðsagnadýr.
Bagon
372SkeldrekiSkel-drekiSkel: Hörð hlíf.
Dreki: Skrímsli, goðsagnadýr.
Shelgon
373ÓgnardrekiÓgnar-drekiÓgn: Hætta/hræðsla.
Dreki: Skrímsli, goðsagnadýr.
Salamence
374BjölluketillBjöllu-ketillKetilbjalla: Líkamsræktartæki.
Orðaleikur: Orðinu snúið við (Bjöllu-Ketill).
Beldum
375ParketillPar-ketillPar: Tveir.
Ketill: Ketilbjalla.
Metang
376KvartillKvart-illKvartett: Fjórir (í hljómsveit).
Ketill: Ketilbjalla, líkamsræktartæki.
Metagross
377SteinvörðurStein-vörðurSteinn: Grjót.
Vörður: Sá sem vaktar eitthvað, eftirlitsmaður.
Regirock
378ÍsvörðurÍs-vörðurÍs: Klaki.
Vörður: Sá sem vaktar eitthvað, eftirlitsmaður.
Regice
379StálvörðurStál-vörðurStál: Málmur.
Vörður: Sá sem vaktar eitthvað, eftirlitsmaður.
Registeel
380HillingHillingHilling: Hillingar eru sjónhverfingar í náttúrunni.Latias
381VitrunVitrunVitrun: Sýn eða opinberun.Latios
382HafgúaHaf-gúaHafgúa: Þjóðtrú, risavaxin vera í sjó sem líktist eyju.Kyogre
383SurturSurturSurtur: Risi úr norrænni goðafræði.
Goðafræði: Jötunninn Surtur mun koma frá Múspellsheimi (eldheimi) og eyða jörðinni í eldi (Ragnarök).
Groudon
384VindhöggurVind-höggurVindur: Loft.
Höggur: Vísun í drekann Níðhögg.
Goðafræði: Vísun í Níðhögg, einn frægasta dreka norrænnar goðafræði sem nagar rætur Yggdrasils.
Rayquaza
385ÓskastjarnaÓska-stjarnaÓsk: Vilji/löngun.
Stjarna: Himintungl.
Jirachi
386SkerðhvatiSkerð-hvatiSkerða: Skera, taka af eða takmarka
Hvati/ensím: efni sem flýtir efnabreytingum
Vísindahugtak: Skerðiensím sér um að klippa í sundur DNA kjarnsýrur.
Deoxys

Fjórða kynslóð (óstaðfest)

Kynslóð fjögur er í vinnslu, áætluð útgáfa um mitt ár 2027

NúmerNafnUpprunaorðÞýðingEnska
387Turtwig